Vorleikur

vorleikur
Á vorin leika þær lausum hala !

Samfylkingartruntan

sigrun_hestur_2

Ekki er sjálfstæðisflokkurinn vel ríðandi hér í bláma norðursins...

íbúalýðræði eða verktakalýðræði það er spurning ?

The Artist

 


Hofstýran á Hofi......

sigrunbjork_1bÁ Kaffihúsi Þar sem ég kem á mánudags- eftirmiðdögum til að spjalla við vin minn hitti ég stundum fyrir nokkra kalla sem ýmist eru hættir að vinna eða við það að komast á eftirlaun.

Ekki veit ég hvort þeir eru allir innfæddir Akureyringar en held að stærstum hluta séu þeir það, oftar en ekki hafa þeir allt á hornum sér í sambandi við ástandið hér í blámanum. 

þeir eru flestir framsóknarmenn án þess þó að vita það og sjá skrattann í öllu því sem núverandi bæjarstjórn gerir eða gerir ekki.

Það er gaman að hlusta á þá og kveikja í þeim með innskotum um að það þurfi að setja meiri peninga í menninguna...

Samsæriskenningar þeirra og plott er oft með miklum ólíkindum, á mánudaginn var það heitast hjá þeim að Sigrún Björk bæjarstjóri mundi gerast Hofstýra í hinu mikla menningarhúsi okkar Akureyringa þegar setu hennar í bæjarstjórastóli líkur að ári.....

Veitingamenn á Akureyri (sem eru nú flestir gengnir í framsóknarflokkinn) eru minnugir þess er ungu fólki var meinaður aðgangur að tjaldsvæðum bæjarins á síðustu stundu í fyrra og óttast nú mest að 8 cilindra bílar verði bannaðir á komandi bíladögum um þarnæstu helgi......

k. The Artist


Offsinn í Listagilinu

Listasafnid4Að búa og starfa í listagilinu á Akureyri hjarta menningarinnar  eru dásamleg forréttindi. Gatan er full af lífi með veitingastöðum kaffihúsum vinnustofum  myndlistaskóla galleríum  listasafni.

Laugardagarnir í gilinu þegar öll gallery-in opna á sama tíma eru margrómaðir út um allan heim, þá er götunni  lokað fyrir bílaumferð og fólk getur notið öryggis í götunni óhrætt um börnin og sjálft sig.....

Við sem búum í götunni erum þó ekki sátt við einn hlut, hinn daglega ofsaakstur Akureyringa upp og niður gilið.

Því ekki að hægja á umferðinni með því að þrengja hana og gera að einstefnu niður götuna ????

 


Jónas Viðar Gallery

  
  
jv_gallery_365myndir_galleryid
 

 Jónas Viðar Gallery - Blogg

 

Blogg um sýningar í Jónas Viðar Gallery í Listagilinu á Akureyri ásamt öðru menningartengdu efni og umræðu um lífið í bláma norðursins

 

http://jv-gallery.blog.is 

 
 

Super Óli.......í blámanum

oli_2008_3_litÓlafur Ragnar Grímsson er sjálfkjörinn næstu fjögur árin... þar sem við myndlistarmenn sáum okkur ekki fært að senda neinn gegn honum.... Super Óli mun hald áfram að ferðast um heiminn og bjarga því sem bjargað verður......

Annars var Hr Ólafur Ragnar hér á ferð í bláma norðursins í hringflugi listahátíðar og stoppaði smá stund í listagili okkar.... borðaði snittur.. skoðaði Kínverska list ásamt því að hlusta á nokkrar ræður.... var svo floginn burt svo sem hann hefði aldrei verið hér.....

Okkur  í blámanum var sagt að við mættum fá okkur af borði Friðriks fimmta þegar aðallinn væri farinn............................

Rispað Kínverskt málverk eftir helgina ... kannski bara brella eftir allt saman......?


mbl.is Forsetinn sjálfkjörinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessað Gilfélagið

jvs_mai07Gilfélagið er barn síns tíma stofnað af áhugafólki um uppbyggingu menningargötu Akureyringa (Listagilið) og var félagið kraftmikið og duglegt í upphafi. Fjöldi fólks kom að starfseminni og margar hendur unnu ómælda sjálfboðavinnu beð bros á vör, full af ákefð fyrir bjartri framtíð félagsins.

Með árunum hefur dofnað yfir starfseminni og fólkið sem þar starfaði hefur fundið sér aðrar leiðir til að koma sínum áhugaverkefnum á framfæri í gegnum sína eigin starfsemi laust við endalausar málamiðlunarlausnir til að gera öllum til hæfis.

Nú líður að aðalfundi Gilfélagsins og legg ég til að það verði lagt niður og þeim peningum (ef þeir eru þá enn til) sem það hefur haft verði notaðir til að byggja undir það blómlega menningarlíf og þá grósku sem er í bænum.


Þegar brennur gróðinn

bubbi_kongur_1Neró spilaði á fiðlu er hann horfði á borg sýna brenna... eða svo segir sagan... nú situr kóngurinn í bankanum sem aldrei áður kannski er hann líka að spila á fiðlu þegar brennur gróðinn.

Einkaþotur sjást ekki lengur á vellinum sem Þorgerður Katrín ætti kannski að friða svona rétt eins og húsin við laugarveg.

Evru vegurinn er heillandi fyrir marga, eða kannski eitt stykki álver eða olíuhreinsistöð.....

Þegar brennur gróðinn þegar brennur gróðinn...


The Superman

oli_clinton_2_litÍ litlu lýðveldi í bláma norðursins seint á síðustu öld komst maður til valda sem vildi gera heiminn betri og fallegri eitt af fyrstu verkum hans var að veita orður öllum þeim sem honum líkaði við... hringdi hann því  í Súpermann vin sinn Clinton kvennabósa og bað hann að kíkja við því hann væri með gjöf handa honum... Superman flaug þegar af stað út yfir hafið að hitta hin nýkjörna forseta og þiggja af honum orðu... Forseti lýðveldisins fékk í staðin súperföt frá superClinton sem þeir flugu í um heiminn til að gera hann fallegri og betri.

Nú er superClinton sestur í helgan stein og ClintonWonderwoman tekin við að falast eftir gamla djobbinu hans, kannski mun forseti lýðveldisins þurfa að veita henni orðu.....


Enn um flygla á Akureyri

oddur_helgi_litrOddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi F listans á Akureyri varð heldur betur frægur á stuttum tíma þá nýkominn í bæjarmálapólitíkina hér fyrir norðan. Einhver umræða var um að kaupa ætti flygil í Ketilhúsið í listagilinu og talað var um að setja í það 2-3 miljónir kr, Oddur steig í pontu og fannst nú heldur mikið bruðl í þessu og lagði til að keyptur yrði skemmtari í staðinn enda væri þar um mikið ódýrari hlut að ræða…. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og er Oddur enn í bæjarpólitíkinni í minnihluta sem oft áður (ef ekki bara alltaf), sem betur fer hefur honum farið mikið fram þegar kemur að menningartengdum málefnum hér í bláma norðursins.

Hvað varðar flygilinn góða sem keyptur var á þessum tíma þá held ég að hann sé einhverstaðar í tónlistarhúsi inn í Eyjafirði, endilega leiðréttið mig ef rangt er með farið.


Frábært hjá KEA

ingiborg_2_2Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir markaðs og kynningarfulltrúi Kea hefur verið ráðin til starfa við menningarhúsið Hof á Akureyri, frábært hjá Kea að senda með henni 10 miljónir króna til kaupa á flygli…. Við sem störfum að menningarmálum hér á Akureyri vonum og vitum að Ingibjörg á eftir að standa sig vel í nýju starfi eins og hún hefur gert fyrir leikfélagið og KEA.
mbl.is KEA kaupir flygil í Hof
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hekla málverk

hekla_3

Portrait of Iceland no: 0001020 Hekla

http://www.jvs.is/a_artforsale_7.htm

http://www.jvs.is

 


Myndlistarfélagið stofnað

fundir 038

Stofnfundur Myndlistarfélagsins var haldinn í Deiglunni á Akureyri þann 26. janúar 2008. Hátt í 50 myndlistarmenn mættu á fundinn og eru stofnfélagar um 60.
Tilgangur og markmið Myndlistarfélagsins eru: Að efla samtök myndlistarmanna og vera málsvari þeirra. Að bæta kjör og starfsgrundvöll myndlistarmanna, gæta hagsmuna þeirra. Að efla umræðu um myndlist og auka þekkingu og fræðslu um myndlist. Að auka myndlist á Norðurlandi sérstaklega og koma á samstarfi við opinbera aðila á svæðinu. Að standa fyrir sýningum á verkum félaga Myndlistarfélagsins. Að koma á samvinnu við listamenn, erlendis sem og hér á landi. Lög félagsins voru samþykkt og einnig ályktun um að efla beri starfslaun Akureyrarbæjar til listamanna. Umræður urðu um starfsaðstöðu myndlistarmanna og lagt til að gerð verði könnun á stöðu myndlistarmanna á svæðinu. Fjölmargar hugmyndir komu fram um starfsemi félagsins og uppbyggilegar tillögur.

Stjórn félagsins var kosin og hana skipa:
Hlynur Hallsson, formaður
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, varaformaður
Brynhildur Kristinsdóttir, ritari
Þórarinn Blöndal, vararitari
Gunnar Kr Jónasson, gjaldkeri
Varamenn:
Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Jónas Viðar

Heimasíða Myndlistarfélagsins er: http://mynd.blog.is/blog/mynd/


Andlit frá Akureyri

Martin_ad_storfum_i_GestastudioinuMartin J. Meier er gestur í Gestastúdíói Gilfélagsins í september. Verkefnið sem hann vinnur að er að teikna andlitsmyndir af íbúum Akureyrar. Myndirnar verða notaðar á sýningu sem opnar í Jónas Viðar Gallery 22. september næstkomandi.Þess vegna biðlar hann til íbúa Akureyrar um að teikna andlitsmyndir af þeim. Markmiðið er að teikna eins marga og auðið er svo úr verði sýning þar sem andlit Akureyringa verða í aðalhlutverki. Það tekur um 20 mínútur að teikna hvert verk og fólk er hvatt til að kíkja til Martins í húsnæði Gestastúdíósins efst í Listagilinu. Einnig má hafa samband við Martin í síma 857-5687 eða senda honum tölvupóst á netfangið martinj@bluvin.ch.Martin útskrifaðist úr listaskólanum Carrara á Ítalíu árið 1993. Hann er fæddur í bænum Chur sem er lítill bær í Sviss, ekki ólíkur Akureyri að sögn Martin. Hann býr og starfar í bænum Basel í Sviss sem er þekktur fyrir mikið listalíf og flottan arkitektur. Þetta er í annað sinn sem Martin er gestur í Gestastúdíói Gilfélagsins.Sýningin opnar sem fyrr segir í Jónas Viðar Gallery 22. september næstkomandi og lýkur 7. október. Heimasíða Martins er: www.martinj.ch


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband